|
þriðjudagur, 21 febrúar 2012 12:56 |
Á föstudaginn 17. feb. hittust vinabekkirnir 2. og 7. bekkur. Nemendur fóru saman út og léku sér í snjónum í ýmsum leikjum. Myndir |
|
|
föstudagur, 17 febrúar 2012 10:17 |
|
Þau hafa verið dugleg börnin í 7. GJS í málfræðinni. Þau hafa greint orðin í sögunni Næturgalinn eftir H.C. Andersen í orðflokka og búið til orðflokkatré þar sem hver orðflokkur hefur sinn lit á laufblöðum. Orðflokkatréð prýðir nú miðstigsganginn. Myndir
|
|
miðvikudagur, 15 febrúar 2012 09:01 |
|
Hrafnhildur Vala og Brynja Sóley, nemendur í 3. SH í Breiðholtsskóla, fengu verðlaun í Eldvarnargetrauninni 2012 sem haldin var á vegum Landssambands slökkviliðsmanna.
Getraunin var lögð fyrir 8 ára börn og voru viðurkenningar og vegleg verðlaun afhent sl. laugardag í Smárlind á 112-daginn, 11. febrúar. Myndir |
|
þriðjudagur, 14 febrúar 2012 11:25 |
|
Verðlaun í skákþraut í tengslum við skákdaginn 26. janúar sl. voru afhent föstudaginn 11. febrúar í hátíðarsal skólans.
Valgerður Laufey Guðmundsdóttir 5. KG bar sigur úr býtum og hlaut titilinn „Skákdrottning Breiðholtsskóla“. Myndir |
|
miðvikudagur, 08 febrúar 2012 09:50 |
|
Úrslitakeppni Útsvarsins í Gíslasögu Súrssonar í 10. bekk Breiðholtsskóla fór fram í gær í hátíðarsal skólans. Í bláa liðinu voru þær Brynhildur, Sólveig og Unnur en Eva Sif, Martyna og Steinunn í því bleika. Spyrlar voru Bogey og Ingólfur en tímavörslu sá Ragnhildur um. Keppnin var mjög jöfn og spennandi og línur skýrðust ekki fyrr en í þyngdarspurningunum. Svo fór að bláa liðið vann á lokaspretti með 74 stigum gegn 60. Keppendur stóðu sig frábærlega vel sem og stjórnendur og tímavörður. Áhorfendur skemmtu sér hið besta. Myndir
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 49 |