| Lýsing á starfsemi skólans |
|
|
|
|
Breiðholtsskóli er heilstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10. bekk. Skólinn er í hverfi með blandaðri byggð sem er vel afmarkað landfræðilega og af fjölförnum umferðaræðum. Kjörorð skólans er “árangur fyrir alla” Skólinn er skipulagður með þeim hætti að kennarar sérhæfa sig í tilteknum fögum eða tveimur til þremur árgöngum. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám þar sem litið er á nemendur hvers árgangs sem eina heild. Námshópar eru því sveigjanlegir eftir viðfangsefnum og aðstæðum.Auk almenns bóknáms, einkum lesturs er lögð áhersla er á kraftmiklar íþróttir, list- og verkgreinar. Öflugur stuðningur er við nemendur með sérþarfir bæði einstaklinga og hópa. Í skólanum eru starfrækt fjögur námsver:
Í skólanum er lagt upp með jákvæða hegðun og skýr viðmið og er unnið að innleiðingu á PBS hegðunarkerfinu. Þar sem félagsmiðstöð ÍTR fyrir unglinga er utan hverfis er mikil þörf á félagsaðstöðu umfram það sem gengur og gerist. Mikil aðsókn hefur verið að Bakkaseli, tómstundaheimili ÍTR við skólann en auk þess hefur ÍTR í samvinnu við skólann rekið Perluna, sem er athvarf eftir skóla fyrir börn sem þurfa sérstaka aðhlynningu. Í Breiðholtsskóla er miðstöð Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts og fara þar fram bæði hópæfingar og einstaklingskennsla auk þess sem skrifstofa hljómsveitarstjóra er í skólanum. |








