Næstu viðburðir

mið sep 08
Námskynning í 8.-10.bekk
fim sep 09
Námskynning í 7.bekk
fös sep 10
Námskynning í 2.bekk
mán sep 13
Námskynning í 3.bekk
þri sep 14
Námskynning í 6.bekk

Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Kanntu brauð að baka?

 

Eða viltu elda góðan mat?
Líttu þá á nýju uppskrifta-
síðurnar úr heimilisfræðinni. Þú finnur þær á borðanum hér fyrir ofan undir flipanum Nemendur > Námsgreinar > Heimilisfræði

rok

Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna við röskun á skólastarfi vegna óveðurs

Innskráning



Lýsing á starfsemi skólans Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Breiðholtsskóli er heilstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10. bekk. Skólinn er í hverfi með blandaðri byggð sem er vel afmarkað landfræðilega og af fjölförnum umferðaræðum. Kjörorð skólans er “árangur fyrir alla” Skólinn er skipulagður með þeim hætti að kennarar sérhæfa sig í tilteknum fögum eða tveimur til þremur árgöngum. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám þar sem litið er á nemendur hvers árgangs sem eina heild. Námshópar eru því sveigjanlegir eftir viðfangs­efnum og aðstæðum.Auk almenns bóknáms, einkum lesturs er lögð áhersla er á kraftmiklar íþróttir, list- og verkgreinar. Öflugur stuðningur er við nemendur með sérþarfir bæði einstaklinga og hópa. Í skólanum eru starf­rækt fjögur námsver:

  • Nýbúaver; fyrir börn með annað móðurmál en íslensku.
  • Starfsver; fyrir eldri nemendur með verulegar atferlis- og námsraskanir.
  • Stuðningsver; fyrir yngri nemendur með verulegar námsraskanir
  • Næðisver; fyrir yngri börn sem þurfa tímabundið mjög gott næði til að ná einbeitingu og árangri í námi og hegðun.

Í skólanum er lagt upp með jákvæða hegðun og skýr viðmið og er unnið að innleiðingu á PBS hegðunar­kerfinu. Þar sem félagsmiðstöð ÍTR fyrir unglinga er utan hverfis er mikil þörf á félagsaðstöðu umfram það sem gengur og gerist. Mikil aðsókn hefur verið að Bakkaseli, tómstundaheimili ÍTR við skólann en auk þess hefur ÍTR í samvinnu við skólann rekið Perluna, sem er athvarf eftir skóla fyrir börn sem þurfa sérstaka aðhlynningu. Í Breiðholtsskóla er miðstöð Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts og fara þar fram bæði hóp­æfingar og einstaklingskennsla auk þess sem skrifstofa hljómsveitarstjóra er í skólanum.