|
Einelti er skilgreint sem endurtekið eða viðstöðulaust áreiti, andleg, líkamleg eða munnleg valdbeiting framkvæmd af einstaklingi eða hópi gegn einum eða fleiri einstaklingum.
Mismunandi birtingarform eineltis:
-
Uppnefningar og baktal
-
Sögusögnum komið á kreik til að koma öðrum í vandræði
-
Telja fólk frá því að spjalla eða vingast við ákveðna einstaklinga
-
Gert er grín að öðrum vegna útlits eða þyngdar
-
Hæðst er að menningu, trú eða húðlit einstaklings
-
Hæðst er að fötlun eða heilsuleysi
-
Útilokun - ákveðnir einstaklingar fá ekki að vera með í leikjum
-
Gert er ítrekað grín að einstaklingi sem tekur það nærri sér
-
Illkvittin sms, netpóstur eða blogg
-
Neitað er að vinna með ákveðnum einstaklingum
-
Eigur annarra eyðilagðar
-
Líkamlegar meiðingar, sparkað, slegið, hrækt eða fellt
Það er ekki formið sem skiptir mestu máli heldur hvaða áhrif áreitið hefur á þolandann.
Stríðni, átök og einstakur ágreiningur milli jafningja telst ekki til eineltis.
(Regnbogabörn o.fl.)
Fara á kafla nr. 2
|