Næstu viðburðir

mið sep 08
Námskynning í 8.-10.bekk
fim sep 09
Námskynning í 7.bekk
fös sep 10
Námskynning í 2.bekk
mán sep 13
Námskynning í 3.bekk
þri sep 14
Námskynning í 6.bekk

Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Kanntu brauð að baka?

 

Eða viltu elda góðan mat?
Líttu þá á nýju uppskrifta-
síðurnar úr heimilisfræðinni. Þú finnur þær á borðanum hér fyrir ofan undir flipanum Nemendur > Námsgreinar > Heimilisfræði

rok

Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna við röskun á skólastarfi vegna óveðurs

Innskráning



2. Meðferð eineltismála Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Vitneskja berst um einelti til starfsfólks skólans frá nemenda, foreldrum/forráðamönnum eða öðru starfsfólki. Ávallt skal gæta trúnaðar við meðferð eineltismála. Það er á ábyrgð hinna fullorðnu að koma upplýsingum, vísbendingum eða vissu um einelti í réttan farveg.

Umsjónarkennari tekur við málinu.
Umsjónarkennari greinir málið samkvæmt skilgreiningu skólans á einelti.  Hann leitar eftir upplýsingum frá öðru starfsfólki skólans og foreldrum/forráðamönnum; hvar, hver, hvenær, hvernig, hverjir áttu hlut að máli og skráir það hjá sér á ferilsskráningarblað. 
Ef umsjónarkennari metur að um einelti sé að ræða gerir umsjónakennari foreldrum/ forráðamönnum gerenda og þolenda grein fyrir stöðunni. Farið er yfir:

  • hver tilboð skólans eru til að aðstoða þolanda og geranda
  • hvað foreldrar/forráðamenn geta gert til aðstoðar barni sínu og skólanum
  • samstarf foreldra/forráðamanna og umsjónakennara um eftirfylgd málsins

Umsjónarkennari metur hvaða vinnuferli hentar best miðað við aðstæður hverju sinni. Algengt vinnuferli er:

  • foreldrum/forráðamönnum gerenda og þolenda er gerð grein fyrir málavöxtum og áætlun skólans kynnt fyrir þeim. Foreldrum/forráðamönnum afhentur bæklingur um einelti
  • allir nemendur bekkjar/hóps teknir í stutt einkaviðtal
  • gerendur eru teknir í einkaviðtöl og viðtalinu fylgt eftir
  • stuðningsviðtöl við þolandann
  • stuðningsviðtöl við gerendur
  • eftirlit er aukið þar sem einelti hefur átt sér stað

Ef umsjónarkennari óskar aðstoðar eða ráða frá eineltisteymi biður hann um fund með teyminu og kemur með afrit af ferliskráningarblaði á fundinn.
Ef aðgerðir bera ekki árangur að mati umsjónarkennara og eineltisteymis er málinu vísað til nemendaverndarráðs.
Allt ferlið er skráð af umsjónarkennara á sérstakt skráningarblað og öll gögn varðandi hvert mál geymd hjá námsráðgjafa. Foreldrar/forráðamenn eru einnig hvattir til að skrá hjá sér málsatvik.

(Með leyfi Lágafellsskóla, apríl 2008)

Fara á kafla nr. 3