Næstu viðburðir

mið sep 08
Námskynning í 8.-10.bekk
fim sep 09
Námskynning í 7.bekk
fös sep 10
Námskynning í 2.bekk
mán sep 13
Námskynning í 3.bekk
þri sep 14
Námskynning í 6.bekk

Viðburðadagatal

« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Kanntu brauð að baka?

 

Eða viltu elda góðan mat?
Líttu þá á nýju uppskrifta-
síðurnar úr heimilisfræðinni. Þú finnur þær á borðanum hér fyrir ofan undir flipanum Nemendur > Námsgreinar > Heimilisfræði

rok

Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna við röskun á skólastarfi vegna óveðurs

Innskráning



5. Hlutverk foreldra Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Einelti getur verið mjög dulið. Börn segja ekki frá því að þau séu lögð í einelti og ekki eru alltaf vitni að því að einelti eigi sér stað. Ef einelti hefur staðið yfir í nokkurn tíma, getur verið nóg fyrir geranda að líta í átt að þolanda til að vekja upp hræðslu og styrkja þannig aðstæðurnar.
Foreldrar eru sérfræðingar í sínum börnum og eru best til þess fallnir að taka eftir breytingum í hegðun eða líðan barnsis. Mikilvægt er að vera vakandi fyrir ýmsum einkennum sem geta bent til þess að barnið verði fyrir einelti. Þó ber að hafa í huga að þessi einkenni geta einnig komið fram undir öðrum kringumstæðum.
Eftirfarandi einkenni geta gefið til kynn að barnið verði fyrir einelti í skólanum.

Barnið...

  • kvartar undan höfuðverk, magaverk og öðrum líkamlegum kvillum
  • neitar að fara í skólann eða mætir iðulega of seint
  • forðast ákveðnar aðstæður í skólanum, t.d. leikfimi, sund
  • er einangrað, fær ekki heimsóknir og fer ekki í heimsóknir
  • hefur lítið sjálfstraust, virðist hrætt og kvíðið
  • sýnir kvíðaeinkenni eins og að naga neglur, stama, lystarleysi, martraðir, grát, svefnleysi
  • óútskýranleg skapofsaköst og/eða grátköst
  • kemur heim með skemmdar eigur eða biður um auka vasapening
  • verður fyrir líkamlegum meiðslum

Ef grunur leikur á að barnið veðri fyrir einelti...

    • er mikilvægt að ræða opinskátt við barnið, hlusta trúa og gefa tíma
    • er mikilvægt að safna eins mikið af upplýsingum um kringumstæður eins og hægt er
    • tala við systkini og vini, spyrja t.d. hvað gerist í frímínútum og á leið í og úr skóla
    • hafa samband við umsjónarkennara. Hann ber ábyrgð á meðferð eineltismála í sínum bekk en fær aðstoð eineltisteymis skólans ef þurfa þykir
    • hafa í huga að meðferð eineltismála getur tekið tíma. Mikilvægt er að vinna vel með skólanum að farsælli lausn

Ef barnið mitt er gerandi...

  • hafið samband við skóla, þar er hægt að setja í gang viðeigandi aðgerðir
  • reiði og skammir duga skammt. Árangursríkara er að setjast niður og ræða málin. Skýra þarf út fyrir barninu að það er alveg ólíðandi að særa aðra, bæði líkamlega og andlega. Barnið þarf að skilja að maður ræðst ekki á minnimáttar
  • gott er að fá barnið til að setja sig í spor þolenda og ímynda sér hvernig þeim líður
  • ræðið hvernig barnið geti bætt fyrir hegðun sína
  • ræðið hvernig hægt er að láta þolandanum líða betur í skólanum
  • verið í sambandi við kennara. Biðjið um að vera látin vita um framgang mála.
  • munið að hrósa barninu ef vel gengur
Fara á kafla nr. 6