|
þriðjudagur, 08 júní 2010 12:22 |
|
Starfsfólk Breiðholtsskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og þakkar fyrir samstarfið á liðnu skólaári. Sérstakar kveðjur fá útskriftarnemarnir okkar og eru hér myndir frá útskriftarathöfninni. Einnig má finna vísurnar sem kennarar sungu við athöfnina með því að smella á "Lesa meira....". Sjá myndir
|
|
Lesa meira...
|
|
|
miðvikudagur, 24 mars 2010 11:28 |
|
Í dag kom Stoppleikhópurinn í heimsókn í skólann og flutti leikverkið Bólu-Hjálmar fyrir nemendur í 5. - 10. bekk. Áhorfendur voru áhugasamir og virtust skemmta sér hið besta. Sjá myndir
Leikritið er byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars og hlaut sýningin Grímuverðlaunin sem Barna- og unglingaleiksýning ársins 2009. Fræðast má frekar um sýninguna á heimasíðu leikhópsins |
|
Föstudagurinn 5. febrúar 2010 er dagur stærðfræðinnar. Hvert ár er tileinkað ákveðnu þema og í ár er þemað stærðfræði og hugtakakort. Hugmyndin með því er að nemendur tengi saman stærðfræði og tungumál. Sjá nánar á Í dagsins önn á nams.is Á vefsíðu Flatar, samtaka stærðfræðikennara, er meiri fróðleikur um hugtakakort og sýnishorn af þeim eftir nemendur.
|
|
|
föstudagur, 22 janúar 2010 09:37 |
|
Þorri er eitt af gömlu íslensku mánaðarheitunum. Í ár gengur þorrinn í garð föstudaginn 22. janúar og kallast sá dagur bóndadagur. Þorranum lýkur með þorraþræl sem er laugardagurinn fyrir konudag og tekur þá góa við.
Þú getur fræðst meira um þorrann á vefsíðunni nams.is Þar geturðu líka hlustað á Þorraþrælinn (Nú er frost á fróni) sunginn
|
|
fimmtudagur, 03 desember 2009 09:42 |
|
Nú í desember verður morgunsöngur á sal fyrir nemendur 1. – 7. bekkja. Eins og undanfarin ár kemur Þorvaldur Jónsson með harmonikkuna og leikur undir. Honum til aðstoðar á trommu er Aron Heiðar Hauksson, nemandi í 10. bekk og barnabarn Þorvaldar. Börnin taka vel undir og syngja við raust en textunum er varpað á vegg svo allir geti verið með. Foreldrum er velkomið að líta inn og taka þátt í morgunsöngnum. Morgunsöngur í 5. – 7. bekk hefst kl. 8:15 en í 1. – 4. bekk kl 9:10 Sjá myndir
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 3 |