Kanntu brauð að baka?

 

Eða viltu elda góðan mat?
Líttu þá á nýju uppskrifta-
síðurnar úr heimilisfræðinni. Þú finnur þær á borðanum hér fyrir ofan undir flipanum Nemendur > Námsgreinar > Heimilisfræði

rok

Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna við röskun á skólastarfi vegna óveðurs

Yngsta stig
Reiðhjólahjálmar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 07 júní 2010 09:00

1°. bekkur fær reiðhjólahjálmaFélagar úr kiwanisklúbbnum Elliða komu færandi hendi í skólann einn góðviðrisdaginn í síðustu viku og færðu öllum börnum í 1. bekk reiðhjólahjálma. Sjá myndir

Um er að ræða árlegt átak Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips. Kiwanisfélagar fara í alla grunnskóla á landinu og afhenda börnunum hjálma og ræða við þau um umferðaröryggi og notkun hjálmanna. Að auki fá börnin fræðsluefni um rétta stillingu og notkun hjálma til að taka með sér heim.

 
Útivistardagar að vori Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 03 júní 2010 12:57

KöngulóarklifurgrindSenn líður að lokum þessa skólaárs. Hefðbundinni kennslu er lokið og þessir síðustu skóladagar í júní eru nýttir til útivistar og leikja. Útivistardögum mun svo ljúka með grillhátíð í hádeginu á föstudag.

Bekkir á barnastigi hafa farið ýmsar skemmti- og gönguferðir í nágrenni skólans. Sem dæmi má nefna að 3. bekkur fór í dag gangandi á leikvöll við Vesturberg og þar var farið í boltaleiki, rólur og ekki síst kóngulóarklifurgrindina.
Sjá myndir.

Í unglingadeild standa fjölgreindaleikar yfir en á föstudag verður íþróttahátíð hjá 8. og 9. bekk en 10. bekkur heldur í útskriftarferð.

 
Góð hegðun Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 14 maí 2010 11:47
2. GEA 2. HE

Nemendur í 2. bekk fengu frjálsan tíma í vikunni í viðurkenningarskyni fyrir að ná tilskyldum fjölda áttavita (punkta) í hegðunarkerfinu PBS.
Nemendur í 2. GEA völdu að fá að mæta í furðufötum, horfa á bíómynd og borða snakk. Sjá myndir
Nemendur í 2. HE völdu sér frjálsan tíma í sundlaug skólans. Sjá myndir
Nemendur skemmtu sér vel, voru til fyrirmyndar og fóru eftir reglum í einu og öllu.

 
Barnamenningarhátíð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 19 apríl 2010 12:19

Barnamenningarhátíð 2010Nemendur í 4. bekk Breiðholtsskóla voru við setningarathöfn Barnamenningarhátíðar í morgun. Þeir fóru ásamt kennurum sínum með rútu á Umferðarmiðstöðina og gengu svo í skrúðgöngu í Hljómskálagarðinn. Þar setti borgarstjóri hátíðina með aðstoð Fíusólar, sirkuslistamanna, götuleikhúsfólks og fjórðubekkinga í Reykjavík.
Ferðin gekk í alla staði vel og framkoma nemenda var skólanum til sóma.
Sjá myndir

 
Leiksýning Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 02 mars 2010 11:32
landid_vifra_thumbNemendur í 1. - 4. bekk fengu góða gesti í heimsókn í dag. Þar voru á ferðinni leikarar úr Möguleikhúsinu með leiksýninguna Landið vifra sem byggð er á hinum vinsælu barnaljóðum Þórarins Eldjárns. Börnin hlustuðu af athygli og skemmtu sér hið besta. Sýningin var í boði Foreldrafélagsins, FOK, og þökkum við kærlega fyrir okkur.
Sjá myndir
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 5